Ásgarður, fréttir af starfinu:

Íþróttahús
Íþróttahús
Í dag var fyrsti íþróttatíminn og mikil gleði hjá nemendum skólans. Græni- og Rauðigarður fóru í fyrsta tíman. Hluti hópsins eða nemendur fæddir 2008 voru að koma í fyrsta skiptið í íþróttatíma, það var ekki að merkja á nemendum að þau væru óörugg í nýjum aðstæðum. Þetta eru svo flottir nemendur hér í skólanum sjálfsöruggir. Það er frábært að við getum boðið nemendum upp á að fara í íþróttahúsið. Hjördís Ósk Óskarsdóttir íþróttakennari er með íþróttatímanna vegna fæðingaorlofs Magnúsar ... (30. 8. 2010)

Ýmsar fréttir
Ýmsar fréttir
Ásta Þorsteinsdóttir er komin í hlutastarf við skólann og mun sinna stoðþjónustu í skólanum. Ásta er þroskaþjálfi að mennt útskrifuð frá HA árið 2007. Lífið í skólanum hefur verið svolítið öðruvísi þessa daganna nýtt starfsfólk byrjað og annað að byrja eins og Bogga er að koma úr fæðingaorlofi í lok ágúst og vinnur á Grænagarði vinnutími 8-12. Hafdís Ósk Óskarsdóttir mun einnig hefja störf á sama tíma, líka á Grænagarði vinnutími 8-16. Nýir nemendur byrja svo í aðlögun í byrjun ... (19. 8. 2010)

Helga sem var hætt
Helga sem var hætt
ætlar að vera hjá okkur næstu daga hún liggur í okkur að fá að vera hér, hún saknar okkar svo mikið :) Hún telur sig vera hér af því að starfsfólk er í sumafrí við leyfum henni að halda það. Verið ekkert að ræða þetta við hana þetta er viðkvæmt mál hjá henni. glm (12. 8. 2010)

 
Snjólaug hættir
Snjólaug hættir
Nú er Snjólaug hætt hjá okkur og er að flytja á Akranes. Við þökkum henni fyrir samfylgdina í leikskólanum síðastliðin ár. Við þökkum fyrir að hafa haft hana í skólanum okkar:) glm (11. 8. 2010)

Brúðubíllinn
Brúðubíllinn
var hér á Hvammstanga í dag þriðjudag í boði Húnaþings vestra. Góð mæting var af íbúum sveitafélagsins. Brúðubíllinn á 30 ára starfsafmæli á þessu ári. Allir skemmtu sér vel á sýningunni. Eftir sýninguna fengum við okkur síðdegishressingu úti við félagsheimilið. Takk fyrir okkur Húnaþing vestra.glm (10. 8. 2010)

 
 Ásgarður,  Garðavegi 7,  530 Hvammstangi 
 Sími: 451-2343, 

Húnaþing vestra
Afmælisbörn dagsins

Arna Ísabella 3 ára
Steinunn Daníela 3 ára

Þekking
Við höfum fengið 50.742
heimsóknir á vefinn okkar