Skondið leikskólalíf. - Góða helgi framundan. Veðrið er dásamlegt þessa dagana og það getur verið skondið þetta leikskólalíf! Ýmist er maður hafður inní Krakkakrónni eða fyrir utan og alltaf jafn gaman og gott að vera í leikskólanum sínum. Takk fyrir það sem af er vikunni og góða helgi. ÞB (2. 9. 2010)
Velkominn Anton Logi Anton Logi byrjaði eftir sumarfrí og við bjóðum hann og fjölskyldu hans innilega velkomin á Barnaból. (2. 9. 2010)
Velkominn Rúnar Páll Rúnar Páll byrjaði á Sæbóli í júní og núna fyrst erum við að setja inn velkominn-myndin af þessum káta strák. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans innilega velkomin á Barnaból.ÞB (2. 9. 2010)
Rabbabara - uppskerutíð Í morgun tóku krakkarnir og Lilja upp rabbabarann í grænmetirhorninu okkar. Þau brytjuðu hann úti í góða veðrinu, settu í pott ásamt sykri og síðan mallaði hann frameftir degi. Úr varð þessi líka gómsæta sulta sem var smökkuð sem álegg á brauðið í síðdegiskaffitímanum. Allir á Lundi fengu að prufa að brytja rabbabara og aðeins einn skar sig smá í fingur = orðið vant fólk í rabbabaraskurði! ÞB (2. 9. 2010)
Yfir hverju eru allir að krunka? Þröstur og áhugasamir álaskoðendur! Jú, það kom afar spennandi gestur í heimsókn í leikskólann í gær. Hann var fimur og frár, hlykkjaðist áfram, flottur á litinn og sleipur sem áll! Enda var þetta áll . Hann kom úr Hnausatjörn í Vatnsdal og Þröstur pabbi Ellerts Atla kom með hann í leikskólann, takk innilega fyrir það :) Álar eru merkileg dýr/fiskar sem geta verið töluverðan tíma á þurru landi án þess að drepast og hlykkjast um eins og slöngur. Állinn okkar fékk að fara í vatn í bala en í ... (2. 9. 2010)
Samskipti Zelía á hvíta kanínu sem er henni mjög kær en hún er alveg tilbúin að deila henni með öðrum og hér eru hinir krakkarnir að dáðst að kanikku. ÞB (1. 9. 2010)
Velkomin Erla Mjöll Við bjóðum Erlu Mjöll Daðadóttur og fjölskyldu hennar innilega velkomin á Barnaból. Erla Mjöll byrjaðið á leikskólanum nú í ágúst og hefur búið t.d.í Noregi. ÞB (1. 9. 2010)
Velkomin Arnór Ágúst Við bjóðum Arnór Ágúst Sindrason og fjölskyldu hans innilega velkomin á Barnaból. Arnór Ágúst kom á leikskólann nú í ágúst og hann og stóri bróðir búa bæði hjá ömmu og afa í Bankastrætinu og heima á Rifkellsstöðum í Eyjafirði eftir að mamma fékk vinnu á Blönduósi.ÞB (1. 9. 2010)
Velkomin Atli Þór Við bjóðum Atla Þór Sindrason og fjölskyldu innilega velkomin á Barnaból. Atli Þór kom á leikskólann nú í ágúst og hann og litli bróðir búa bæði hjá ömmu og afa í Bankastrætinu og heima á Rifkellsstöðum í Eyjafirði eftir að mamma fékk vinnu á Blönduósi.ÞB (1. 9. 2010)
Afmæli! Gunnar Andri er 4 ára 31. ágúst við óskum honum innilega til hamingju með daginn hann bauð öllum upp á ís á afmælisdegi deildarinnar við þökkum kærlega fyrir okkur og bestu afmæliskveðjur frá öllum á Barnabóli. (30. 8. 2010)
Afmæli! Óðinn Örn er 4 ára 31. ágúst hann bauð öllum upp á ávexti í dag því hann missti af ágúst afmæli deildarinnar, við óskum honum innilega til hamingju með afmælið. Bestu kveðjur frá öllum á Barnabóli (30. 8. 2010)
Góða helgi Margir nemendur og kennarar eru uppteknir af strandi Steypireyðarinnar í Ásbúðarfjöruna s.l. þriðjudag og við erum að vinna með þessa stórmerku frétt. Guðlaug náði í fréttina úr sjónvarpinu og sýndi nemendum, kom með bækur að heiman um hvali og okkar hvalabækur dregnar fram. Nokkrir nemendur hafa séð þennan risahval og Hafliði pabbi Hlyns sendi okkur myndir sem hann tók „og þvílíkt flykki" og eru myndirnar grandskoðaðar. Annars er allt að smella saman vegna hópastarfsins og annars skipulags ... (27. 8. 2010)
Afmæli! Sóley Sif varð þriggja ára 26. júlí hún hélt upp á afmæli sitt með ágúst börnunum og bauð öllum upp á ís við óskum henni innilega til hamingju með afmælið sem var í sumarfríinu :) bestu afmæliskveðjur frá öllum á Barnabóli. (24. 8. 2010)
Blómabörn og góða helg Fallegt - Lundarnemar og rósirnar á Hnappstaðatúni. Til upplýsingar fyrir fyrir foreldra: Deildastjórinn á Sæbóli í veikindaleyfi frá 13.-30. ágúst og hann hefur yfirleitt umsjón með að setja inn deildamyndir og fréttir fyrir Sæból og því verður einhver bið eftir nýjum fréttum og myndum þaðan. Síðustu daga eru inni afleysingastarfsmenn leikskólans að leysa af þá sem eru í leyfum. Í aðlögun eru tveir nemar á Sæbóli og einn á Lundi og myndir af þeim koma fljótlega á heimasíðuna og bjóðum við þá ... (20. 8. 2010)
Afmælisdagurinn Afmælisdagurinn fyrir júlí og ágúst nemendur á Lundi var í gær 19.ágúst og mikið og gómsætt fjör þegar afmælisbörnin buðu samnemum sínum upp á apaísinn góða. Innilega til hamingju með afmælin fínu afmælisbörn. ÞB Hressir og fínir 3ja og 4ra ára afmæliskrakkar (20. 8. 2010)
Nestistími í berjamónum Við ákváðum að fara í berjaferð út á Höfða í gær og nýta góða veðrið. Þar var fullt af berjum og þvílíkt hvað við erum dugleg að týna -reyndar er alltaf eitthvað um að hellist niður úr dollunum en það sem fór í munninn stendur alltaf fyrir sínu :) Út um mó, inn í skóg upp í hlíð í grænni tóg. ... (18. 8. 2010)
Til í allt og Kántrýhelgi framundan - Góða helgi Einn góður á Sæbóli og nýfarinn að hlaupa um allt og með „stefnuljós“ um allt ennið - eða þannig. Takk fyrir vikuna og góða helgi. ÞB (13. 8. 2010)
Ætli pelinn sé mátulega heitur? Mamman litla prufar hitastigið á pelanu áður en dúkkubarnið fær hann og á bak við sést í aðra enn yngri mömmu með sitt barn - mikill mömmuleikur á Sæbóli. ÞB (13. 8. 2010)
Töfrahattur Kannski trúið þið því ekki en þessi flotti töfrahattur mætti óvænt í leikskólann í hádeginu með eiganda sínum töframanninum Einari ásamt Daníel töframanni. Og það sem þeir gátu töfrað t.d. varð einn rauður bolti að sex boltum, þrjár slæður urðu að íslenska fánanum, allt í einu kom risa plastlengja út um munninn á Einari meðan hann talaði við krakkana og fleira og fleira. Nokkrir fyrrverandi nemendur komu og skemmtu sér með okkur á þessum óvænta en skemmtilega viðburði. ÞB „Gleði og ... (13. 8. 2010)
Afmæli! Gunnar Snorri á afmæli í dag hann er 4 ára við óskum honum innilega til hamingju með daginn. Bestu afmæliskveðjur frá öllum á Barnabóli (12. 8. 2010)
„Skagaströnd í nýju ljósi“ Hér sést Lundar-fólkið skoða ljósmyndasýningu á Hnappstaðatúni. Þau standa við líflega sumarmynd eftir Guðlaugu leikskólakennara og til vinstri er mynd eftir Helenu Möru. Í vor efndi sveitarfélagið til ljósmyndasamkeppni undir þemanu „Skagaströnd í nýju ljósi". Valdar voru 20 myndir á sýninguna og af þeim eiga „innanbúðarfólk“ leikskólans flottar myndir; Gógó, Guðlaug, Herdís og Helena Mara sem allar hafa og/eða eru að vinna á Barnabóli, listrænt leikskólafólk:) Við hvetjum alla til að skoða ... (11. 8. 2010)
Velkomin til leiks og starfa Velkomin á leikskólann Barnaból til leiks og starfa eftir sumarfrí. Framundan eru skemmtilegir dagar; svo sem berjaferð, fjöruferð, að safna stráum og efniviði fyrir vetrarföndrið, Kántrýdagar og margt fleira. Nokkrar breyting verða í kennarahópnum í haust og verður það fljótlega auglýst á deildartöflum. Við þökkum Guðmundu og Stínu, sem nú láta af störfum, innilega fyrir góð störf og samveru og óskum þeim velfarnaðar. ÞB (9. 8. 2010)