Glaðheimar, fréttir af starfinu:

Lambaferð
Ef veður leyfir ætlum við að fara í lambaferð að Geirastöðum mánudaginn 27. maí. Fyrsta ferð verður farin kl. 10:00 og svo verður haldið áfaram að rúnta þar til öll börnin hafa fengið að fara í heimsókn. (22. 5. 2013)

Krummi krúnkar úti
Á morgun fimmtudag munu meðlimir Funa þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster koma í heimsókn í leikskólann kl. 10:30 og fræða okkur um Hrafnin með söng og leik. (22. 5. 2013)

 
Myndlistasýning.
Við viljum vekja athygli á því að búið er að setja upp myndir barnanna í ráðhúsinu svo þeir sem koma og kjósa geta skoðað myndirnar í leiðinni. (26. 4. 2013)

 
 Glaðheimar,  Hlíðarstræti 16,  415 Bolungarvík 
 Sími: 456-7264, 


Þekking
Við höfum fengið 25.259
heimsóknir á vefinn okkar