Afmælisbarn dagsins Védís Ósk var 5 ára í gær. Að venju fékk hun flotta kórónu, við sungum fyrir hana afmælissönginn og sendum henni okkar bestu hugsanir með óskasteininum. Að lokun bauð hún okkar upp á popp. Til hamingju með daginn kæra vinkona:):):) (1. 9. 2010)
Nýtt barn Nú á dögunum byrjaði nýr strákur í leikskólanum hjá okkur, það er hann Axel Vilji. Hann er eins árs gamall og á heima á Ísafirði. Við bjóðum hann innilega velkominn í leikskólann og við hlökkum til að kynnast honum betur. (1. 9. 2010)
Starfsmannafundur Mánudaginn 27. september verður leikskólanum lokað klukkan 13:00. Við opnum að venju klukkan 7:45 og höfum hefðbundinn leikskóladag til kl.13:00. Þá gefum við börnunum skyr og brauð og biðjum síðan um að börnin séu sótt klukkan 13:00. Við notum starfsmannafundinn til að vinna að skipulagsstarfi. Kær kveðja, Barbara:) (26. 8. 2010)
Námskeiðsdagur Föstudaginn 24. september nk. verður leikskólinn lokaður vegna námskeiðsdags. Þann dag eru allir leikskólar Ísafjrðarbæjar lokaðir og sameiginlegur námskeiðsdagur haldinn fyrir allt starsfólk. Kveðja, Barbara. (26. 8. 2010)
Velkomin í leikskóla Það er byrjuð ný stelpa í leikskólanum, það er hún Brynja Sif Jónsdóttir. Hún er 13 mánaða gömul og er núna yngsta barnið á Grænagarði. Við bjóðum hana velkomna í leikskólann og hlökkum til að kynnast henni betur . (26. 8. 2010)