Sveitaferð í Hof í dag fórum við upp í Hof í okkar árlegu sveitaferð. Það var Hlynur ,,sæti" sem ók okkur á stórri rútu. Hofsbændur tóku vel á móti okkur eins og þeirra er siður og fóru með okkur í fjárhúsin. Þar sáum við kindur og fullt af nýbornum fallegum lömbum. Það var frekar blautt úti í dag svo við fengum okkur hressingu inn í hlöðu, kex og safa.Ferðin var einstaklega vel heppnuð og þökkum við Hofsbændum kærlega fyrir okkur :) (14. 5. 2013)
Bíó Elsti árgangurinn í skólanum er búin að vera að lesa söguna um Ronju ræningjadóttur og fengu þá frábæru hugmynd að gaman væri að enda hana með bíói. Mikil spenna og undirbúningur hefur verið í gangi og í dag var stóri dagurinn. Elstu börnunum á Stekk var boðið að vera með og féll það vel í kramið hjá þeim. Aðgangseyrir var einn steinn og boðið var upp á popp og djús. (10. 5. 2013)
Grunnskólaheimsókn Hefð er fyrir því að elsti árgangur Hádegishöfða fari í reglulegar heimsóknir í Fellaskóla sem er sá grunnskóli sem þau flest koma til með að fara í eftir leikskólagönguna. Hafa þessar heimsóknir verið um það bil einu sinni í mánuði í vetur. Tilgangur heimsóknanna er að auðvelda nemendum það skref að fara á milli skóla, að þau kynnast grunnskólanum, nemendum og starfsmönnum hans. Nú á dögunum var farið í eina slíka heimsókn þar sem leikskólanemendur fóru i handmennt með 1.bekk hjá Sigríðar ... (30. 4. 2013)
Sumarlokun Hádegishöfða Sumarlokun Hádegishöfða verður frá og með 15. júlí til og með 9. ágúst 2013 (8. 2. 2013)