Heklukot, fréttir af starfinu:

ART er smart !
ART er smart !
Miðvikudaginn 1. september kl. 17:00 verður ART-kynningarfundur á Trölladeild fyrir foreldra elstu nemenda. Kaffi á könnunni, hlökkum til að sjá ykkur! (30. 8. 2010)

Gísli hættir og fer í háskólann
Gísli hættir og fer í háskólann
Hann Gísli hættir hjá okkur og fer í háskólann. Við þökkum honum innilega fyrir samveruna og óskum honum góðs gengis í skólanum! (27. 8. 2010)

Fræðslufundur í Grunnskólanum
Fimmtudaginn 26. ágúst kl. 17:30 í mötuneyti Grunnskólans verður fræðslufundur fyrir foreldra og starfsfólk leikskólans og yngri bekkja Grunnskólans. Skólasálfræðingur og sérfræðingur frá félagsþjónustunni verða með fræðsluerindi um forvarnir kynferðisofbeldis gegn börnum og fræðslu um hvernig best er að fræða börn. Spurningum svarað úr sal. Vonumst eftir því að sjá sem flesta! (23. 8. 2010)

Kynningarfundur og aðalfundur foreldraráðs
Minnum á árlegan kynningarfund allra foreldra sem verður haldinn í sal leikskólans mánudaginn 23. ágúst kl. 17:30. Sagt verður frá starfi vetrarins, spjallað og húsnæðið skoðað. Þá verður einnig aðalfundur foreldraráðs/foreldrafélags Heklukots. Sjáum vonandi sem allra flesta, kaffi á könnunni! (19. 8. 2010)

Breytingar á stjórnun leikskólans
Nú eru breytingar á stjórnun leikskólans að ganga í garð. Staða aðstoðarleikskólastjóra við Heklukot hefur verið lögð niður í kjölfar skipulagsbreytinga og Svandís Þórhallsdóttir mun láta af störfum 18. ágúst og sækja nám í Háskóla Íslands í náms- og kennslufræðum. Björg Kvaran leikskólastjóri hefur sagt upp og mun láta af störfum. Við þökkum kærlega fyrir samveruna og samstarfið á liðnum árum öllsömul ! Svandís og Björg (17. 8. 2010)

 
Leikskóladeildinni Gljábæ lokað
Leikskóladeildin Gljábær í Þykkvabæ verður lokað núna um mánaðarmót. Við tökum vel á móti félögum okkar þaðan og bjóðum þau hjartanlega velkomin! (16. 8. 2010)

Skemmtileg gjöf !
Skemmtileg gjöf !
Í dag kom hann Aron Birkir Guðmundsson færandi hendi í gamla leikskólann sinn með stórt og flott tuskudýr sem hann gaf okkur. Við þökkum kærlega fyrir þessa skemmtilegu gjöf! (12. 8. 2010)

Fyrsti starfsdagur leikskólans þetta skólaár
Fyrsti starfsdagur leikskólans verður 20. ágúst en þann dag lokar leikskólinn á hádegi, kl. 12:00. Haustþing leikskóla verður svo haldið 24. september og þann dag er leikskólinn lokaður. (9. 8. 2010)

Sumarfrí og starfið í haust
Nú styttist í sumarlokun leikskólans, leikskólinn er lokaður 12. júlí - 9. ágúst. Fyrstu vikur eftir sumarlokun einkennast af aðlögun en svo hefst starfið af fullum krafti seinnipart mánaðarins. Þann 26. ágúst kl. 17:30 verður fræðslufundur fyrir starfsfólk og foreldra leikskólans og yngri bekki grunnskólans, í húsnæði grunnskólans. Skólasálfræðingur og starfsmaður félagsþjónustunnar verða með erindi um forvarnir gegn kynferðisofbeldi gegn börnum. Fjallað verður um forvarnir og fræðslu til ... (24. 6. 2010)

 
 Heklukot,  Útskálum 2 og í Þykkvabæ,  850 Hella 
 Sími: 487-5956, 


Þekking
Við höfum fengið 61.416
heimsóknir á vefinn okkar