Drullumall. Í sumar var útbúið fyrir okkur skemmtilegt svæði þar sem hægt verður að drullumalla. Mörgum börnum finnst fátt skemmtilegra en að fá útrás í drullumalli þar sem hægt er að búa til kökur og súpur að vild. (6. 9. 2010)
Kartöflurnar. Eitthvað voru nú litlar og fáar kartöflur sem komu upp þetta haustið. Það var samt skemmtilegt að rótast í garðinum og reyna að finna sem flestar. Svo ætlum við að borða þær ný soðnar einn morguninn. Nammi-namm. Sumar kartöflurnar voru alveg óskaplega smáar en fengu samt að fara í fötuna. (6. 9. 2010)
Haustlaukar. Okkur voru gefnir haustlaukar um daginn og það voru dugleg börn sem settu þá niður. Í vor verður svo spennandi að sjá þegar blómin koma upp. (6. 9. 2010)
Fyrirlestur fyrir foreldra. Föstudaginn 10.september kl.15:00 stendur foreldrum beggja leikskólanna til boða að koma á Krakkakot og hlusta á Pál Ólafsson. Fyrirlesturinn mun taka um eina klukkustund. Páll Ólafsson er félagsráðgjafi og hefur starfað á félags-og skólaskrifstofu Grindavíkurbæjar en núna nýlega hóf hann störf hjá Barnaverndarstofu. Hann hefur gert töluvert af því að halda fyrirelstra um jákvæð samskipti og þá á öllum skólastigum og einnig fyrir foreldra. Hann er einn af frumkvöðlum ... (6. 9. 2010)
Námskeiðsdagur. Hér er ekki verið að auglýsa vinnuvélanámskeið heldur verður námskeiðsdagur í leikskólanum þann 10.september og því frí hjá börnum. Starfsmenn sitja þennan dag fyrirlestra og fleira sem nýtist svo í starfinu. Przedszkole będzie zamknięte z uwagi na dzień organizacyjny pracowników przedszkola w piątek 10. wrzesień. (31. 8. 2010)
Grasið græna. Þessi fallega mynd var tekin í einum af göngutúrunum sem farið hefur verið í eftir sumarfríið. Það er greinilegt að stúlkunum líður vel að liggja í grasinu græna og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Annars er það að frétta af lóðinni okkar að búið er að fjarlægja ónýtu trén og búa til nýtt beð. Ný tré verða sett niður í haust og erum við spennt að fá að hjálpa til við gróðursetningu. (20. 8. 2010)
Velkomin á ný. Þá er allt að detta í fastar skorður hér í leikskólanum aftur. Það er gaman að taka á móti hressum og úthvíldum börnum og við hlökkum til vetrarins. (12. 8. 2010)