Kynningarfundir Í haust ætlum við að halda kynningarfundi á starfinu á hverri deild og verður hver fundur frá kl. 8:00-9:00. Þetta fyrirkomulag gafst ákaflega vel í fyrra og greinilegt að þessi tími hentar allflestum vel. Á fundunum förum við yfir það helsta í starfinu í vetur. Fundirnir verða haldnir eftirfarandi daga: Þriðjudaginn 21.september í Furuholti, miðvikudaginn 22.september í Birkiholti, fimmtudaginn 23.september í Asparholti og föstudaginn 24.september í Greniholti. Foreldrar eru hvattir til að ... (6. 9. 2010)
Velkomin í hópinn Við bjóðum hana Önnu Jennýju Vilhelmsdóttur velkomna til starfa. Anna Jenný hefur áður starfað í Lyngholti og erum við ákaflega glöð að vera búin að endurheimta hana. Vinnutími Önnu Jennýjar er 8:15-16:15 og hún starfar í Asparholti. (6. 9. 2010)
Velkomin í hópinn Við bjóðum Bryndísi Guðmundsdóttur velkomna til starfa. Bryndís er hjúkrunarfræðingur að mennt og er deildarstjóri í Birkiholti. Vinnutími hennar er 8:00-14:00. (25. 8. 2010)
Velkomin í hópinn Við bjóðum Þórdísi Árnadóttur (Dísu) velkomna í hópinn okkar. Dísa hefur starfað við liðveislu, umönnun aldraðra og við leikskólakennslu. Vinnutími hennar er 8:30-12:30 og hún starfar í Greniholti (25. 8. 2010)
Til starfa á ný :) Nú eru börn og starfsmenn að tínast inn i skólann, hress og endurnærð úr sumarfríum. Við erum óðum að koma okkur í gírinn og verður starf vetrarins kynnt á morgunfundum í september. 11 nýir nemendur koma til okkar í haust en nokkrir byrjuðu í júní. Þá eru þrír nýir starfsmenn að hefja störf hjá okkur þær Anna Jenný, Bryndís og Þórdís og bjóðum við alla nýja félaga velkoma í hópinn. Þá er ánægjulegt að segja frá því að hún Brynja ætlar að vera hjá okkur a.m.k. út september og mun starfa í ... (23. 8. 2010)
Gjaldskrárbreytingar Kæru foreldrar. Þann 1.september hækka vistunar- og fæðisgjöld í leikskólum Fjarðabyggðar. Samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 gerir ráð fyrir 5% hækkun á gjaldskrám skóla. Gjaldskrár hækkuðu síðast 20. ágúst 2009 og breyting á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá þeim tíma hefur hækkað um 5,69%. Gjaldskrá leikskóla Fjarðabyggðar Frá og með 1. september 2010 verða dvalargjöld og fæðisgjöld á leikskólum Fjarðabyggðar sem hér segir. Dvalargjöld Dvalargjöld reiknast útfrá ... (23. 8. 2010)