Ós, fréttir af starfinu:

Kæri vinur Jonni
Kæri vinur Jonni
Okkar kæri vinur Jonni er floginn á vit nýrra ævintýra. Við þökkum yndisdúfu Jonna fyrir vel unnin störf á Ósi og óskum honum alls hins besta í framtíðinni, þú ert frábær.Góðar hugsanir hugsaðir í steininnSvo fékk hann risaknús (10. 6. 2013)

Sveitaferð
Sveitaferð
Í sveitinni skemmti ég mér trallala .. já það gerðu Ósarar svo sannarlega. Það var stórgóð þátttaka foreldra sem er svo frábært svo gaman að hafa svona marga með. Það var brunað á Hraðastaði eins og vanalega en núna á einum stuttum langferðabíl og öðrum löngum langferðabíl... já Ósurum fjölgar svo hratt . Við þökkum Pétri og Dagbjörtu fyrir farið það væri skrítið að hafa þau ekki með. En myndirnar segja meira en mörg orð og er komið fullt af þeim hér inná vefinn, góða skemmtun. (4. 6. 2013)

 
Foreldrakönnun 2013
Foreldrakönnun 2013
Hér má sjá niðurstöður úr foreldrakönnun 2013. Til samanburðar eru niðurstöður leikskólans í foreldrakönnun 2011. Einnig er samanburður við meðaltal Reykjavíkur og hæsta og lægsta gildi í borginni sýnt. (4. 6. 2013)

Sumardagskrá 2013
Sumardagskrá 2013
Sumardagskrá 2013 er tilbúin og ætlum við að bralla margt skemmtilegt saman ásamt því að njóta sumarblíðunnar. Miðvikudagarnir verða ævintýradagar en þá verður skipulögð dagskrá í garðinum okkar. Ævintýradagarnir koma í staðinn fyirr útidótadaga sem hafa verið undanfarin ár en við höldum einum útidótadegi inni en þá er í boði að koma með útidót að heiman í leikskólann (-hjól). Föstudagarnir verða ferðadagar, þá munu eldri fara í lengri vettvangsferðir og yngri í styttri göngutúra í ... (13. 5. 2013)

 
 Ós,  Bergþórugata 20,  101 Reykjavík 
 Sími: 552-3277, Fax: 552-3277, 


Þekking
Við höfum fengið 58.659
heimsóknir á vefinn okkar