Leikskólinn lokaður Föstudaginn 10. september er leikskólinn lokaður vegna námskeiðsdags fyrir starfsfólk skólans. Vonandi veldur þessi lokun sem minnstum óþægindum. (25. 8. 2010)
Velkomin í leikskólann Þá er sumarfríið búið og aðlögun nýrra starfsmanna og barna komin vel á veg. Við erum mjög ánægðar með hversu vel hefur gengið og aðlögunin farið vel af stað. Myndir eru settar inn daglega af börnunum og hvetjum við ykkur foreldrar góðir til að skoða fréttir deilda. Aðgang að fjölskyldusíðunni fáið þið hjá deildarstjóra ef það hefur glatast eða þið ekki búin að fá það afhent. (20. 8. 2010)
STARFSDAGUR Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 10. september 2010 vegna starfsdags starfsfólks. (11. 8. 2010)
Fyrsti dagur eftir sumarfrí Nú er sumarfríið á næsta leiti og vonum við að allir njóti þess og komi endurnærðir að því loknu. Við viljum biðja ykkur kæru foreldrar að gefa ykkur tíma með barninu fyrsta opnunardag eftir sumarfrí. Það er alltaf smá erfitt að koma aftur í leikskólann þegar sumarfríinu lýkur en fyrstu dagana eftir opnun eru yfirleitt fá börn og kanski vantar "besta félagann" eða uppáhalds kennarann. Reynslan hefur þó sýnt okkur að flestir aðlagast breytingum fljótt og reynum við okkar allra besta til að ... (7. 7. 2010)
Grunnupplýsingar um nemendur Foreldrar geta skoðað hér á heimasíðunni, þær grunnupplýsingar sem skráðar eru í leikskólanum um börn þeirra s.s. símanúmer, heimilisföng og netföng. Gott er að hafa það í huga að láta fljótt vita ef um breytingar er að ræða svo auðvelt sé að ná í foreldra ef nauðsynlega þarf. Einföld leið til þess er að fara inn á fjölskyldusíðuna, svo á upplýsingar úr nemendaskrá, breyta því sem þarf að breyta og síðast en ekki síst að senda breytingar. (20. 10. 2009)
Stóra og litla garðhliðið Það eru eitt hlið sem foreldrar og nemendur ganga um þegar þeir koma að skólanum og fara. Það er svolítið kviklæst og því nauðsynlegt að ganga úr skugga um að maður hafi örugglega náð að loka því alveg þegar gengið er frá því. Stóra hliðið sem er við hlið þess litla er meðal annars ætlað fyrir sjúkra- og slökkvibíla og þess vegna er mjög mikilvægt að barnavögnum og hjólum sé ekki lagt við það svo það sé greiður aðgangur fyrir neyðaraðstoð. (9. 10. 2009)