Barnaból, eldri fréttir af starfinu:Birtar eru fréttir síðustu 12 mánaða
Mikill gestagangur Mikið hefur verið um að vera hjá okkur síðustu vikur og hafa margir góðir gestir komið til okkar. Hingað kom fríður hópur syngjandi barna úr 1-4 bekk grunnskólanns. Þau sungu fyrir okkur nokkur lög á nokkrum tungumálum. Starfsfólk leikskólans á Vopnafirði kom einnig sama dag og skoðaði leikskólann okkar. Aðallega komu þær til að skoða flottu leikskólalóðina og fóru þær heim grænar af öfund:) Við megum vera stolt af því afreki sem við unnum síðasta sumar í lóðinni. Við þökkum þeim ... (13. 5. 2013)
Afmælis stúlka Emma Matthildur varð 4ra ára 2.maí og bauð krökkunum uppá snakk í tilefni dagsins. Innilega til hamingju með afmælið þitt Emma:) (3. 5. 2013)
Grunnskóla heimsókn 5 ára börnin okkar hafa verið að heimsækja grunnskólann síðustu vikur. Þau eru búin að fara m.a. í sund, tónlist og handavinnu. Þetta er rosalega spennandi og skemmtilegt. Næst er svo bara innritun í grunnskólann 6.maí kl. 14:00 með foreldrum. (26. 4. 2013)
Kirkjuferð Eldri deildin fór í heimsókn í kirkjuna í gær. Þar tóku séra Hildur og séra Brynhildur á móti okkur. Við sungum og hlustuðum á sögur auk þess að fræðast um kirkuna og skoða hana alla. Við borðuðum svo hádegismatinn okkar niðri í safnaðarheimili. Þetta var heilmikil upplifun og mjög skemmtilegt. Sum börnin eru þó vanafastari en önnur og vildu borða aftur þegar heim var komið:) (10. 4. 2013)
Heilsuvikan hófst á jóga Við hér á leikskólanum tökum þátt í heilsuviku af fullum krafti. Við fórum í jóga strax eftir morgunmat. Eftir smá leik fengum við okkur ávexti og heldum af stað í göngutúr um þorpið okkar. Á leið okkar hittum við m.a. Eyþór og fengum að skoða þegar hann var að vinna grásleppuhrogn- gerist nú varla mikið meira spennandi:) Við hvetjum alla til að hafa bíllausa viku og koma gangandi eða hjólandi í leikskólann. Ekki nóg með hversu góð hreyfingin er heldur er það svo gott fyrir umhverfið okkar, ... (8. 4. 2013)
Afmælis stúlka Hún Hólmfríður Katrín átti afmæli þann 20.mars en hélt upp á það í dag vegna þess að hún skrapp í ferðalag:) hún bauð börnunum upp á snakk og gleði:) óskum við henni til hamingju með daginn:) orðin 4.ára:) (27. 3. 2013)
afmælis stúlka Hún Jódís Kristina átti afmæli 18.mars og hélt upp á það þá. Hún er orðin 3.ára skvísan.Óskum við henni til hamingju með afmælið. (21. 3. 2013)
Afmælisbarn :) Leó Hrafn er 2 ára í dag. Hann bauð börnunum uppá snakk . Við óskum við honum innilega til hamingju með daginn :) (15. 2. 2013)
Myndasíðan okkar Minni á myndasíðuna. Endilega skoðið myndirnar frá þorrablótinu og degi leikskólans:) (12. 2. 2013)
Afmælis strákur Aron Ingi varð 4ra ára þann 9.febrúar. Hann bauð börnunum uppá snakk . Óskum við honum innilega til hamingju með daginn. (12. 2. 2013)
Afmælis strákur Jóhannes Líndal hélt uppá 5.ára afmælið sitt þann 6.febrúar. Innilega til hamingju með daginn. Hann bauð okkur uppá snakk:) (6. 2. 2013)
Afmælisbarn :) Gunnþór varð 2ja ára þann 11.janúar. Hann bauð uppá popp og svo fóru allir út að leika sér. Innilega til hamingju með afmælið Gunnþór:) (28. 1. 2013)
Afmælis strákur Egill Helgi hélt uppá afmælið sitt í dag. Hann varð 2ja ára þann 19.janúar. Egill bauð uppá popp og svo fóru allir út í góða veðrið. Innilega til hamingju með afmælið:) (22. 1. 2013)
afmælis stúlkur Þær Birgitta og Kristín Svala eiga afmæli í dag og er Birgitta 6.ára og Kristín Svala 4.ára. Þær buðu upp á snakk og popp. Vmar þetta síðasti afmælisdagurinn sem Birgitta heldur í leikskólanu. Óskum við þeim til lukku með daginn:) (17. 1. 2013)
afmælis stúlka Hún Ewa okkar átti afmæli þann 14.jan. og varð hún 3.ára. Hún bauð upp á veitingar:) óskum við henni innilega til hamingju með afmælið. (17. 1. 2013)
Afmælis drengir:) Elsku drengirnir okkar þeir Sæmundur Helgi og Mikael Davíð urðu 3.ára núna 7.jan. og héldu þeir upp á afmælið sitt með pomp og prakt:) óskum við þeim til hamingju með afmælið. (17. 1. 2013)
Jólafrí Við óskum börnum og foreldrum gleðilegra jóla og þökkum fyrir frábæra samveru og samvinnu á árinu sem er að líða. Njótið hátíðanna og hittumst hress á nýju ári þann 3.janúar. (21. 12. 2012)
Afmælisstelpa Ása Margrét á afmæli 28.desember en hélt upp á afmælið sitt áður en hún fór í jólafrí. Ása bauð krökkunum uppá popp. Innilega til hamingju með 3.ára afmælið Ása. (21. 12. 2012)
Æðisleg aðventusýning Börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega í gær á sýningu Brúðuheima. Börnin sátu dáleidd yfir þessari flottu sýningu. Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir að gefa okkur þessa sýningu:) (12. 12. 2012)
Afmælisbarn! Guðrún Petra varð 2ja ára í gær og bauð krökkunum uppá píparkokkur og ávextir , Innilega til hamingju með afmælið Guðrún Petra:) (11. 12. 2012)
Kaffihúsaferð á Fontinn Gaman, gaman :) fórum á kaffihús og fengum þessar dýrindis kökur og heitt súkkulaði:) Okkur var leyft að fara í kúluspil og síðan þokkuðum við fyrir okkur og fórum heim í leikskólannn:) (7. 12. 2012)
Afmælisbarn Hann Heiðar Atli okkar verður 5.ára á morgunn 7. des. Þar sem hann verður ekki í leikskólanum þá hélt hann upp á afmælið í dag. Bauð hann upp á popp og dans í tilefni dagsins:) síðan var skundað út í góða veðrið:) (6. 12. 2012)
Jólaföndur foreldrafélagsins Jólaföndur á vegum foreldrafélagsins var í gær 5. des:) skemmtu börn og foreldrar sér bara vel:) og var afraksturinn svaka flottur:) (6. 12. 2012)
Jólaferð á Naust Á miðvikudaginn var okkur boðið á Naust. Við spiluðum keilu, sungum jólasöngva og borðuðum heilann helling af gómsætum smákökum;) Börnin voru spurð hvenær þau ætluðu að koma aftur og svöruðu þau um hæl, strax á morgun:) (6. 12. 2012)
Sigga í pontu Sigga okkar að taka við verðlaunum frá fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Innilega til hamingju með þessi verðlaun, þú átt þau svo sannarlega skilið. (30. 11. 2012)
Umhverfisfræðingur að störfum Í hverri viku sjá umhverfisfræðingar um að losa plast og papparuslið og fara með út í grænutunnu. Hér á myndinni er Jóhannes Líndal að störfum. (30. 11. 2012)
Afmælisbarn dagsins ! Selma Björk varð 2ja ára í dag og bauð krökkunum uppá píparkokkur og kakó , farið var í skemmtilega leiki með vasaljós. Innilega til hamingju með afmælið Selma Björk:) (23. 11. 2012)
Nýtt skilti Elstu börnin okkar útbjuggu þetta fallega skilti til að minna okkur á að drepa á bílunum þegar við förum inn með börnin. Nokkuð hefur borið á því að keyrt sé alla leið að stóra hliðinu og bílarnir í gangi. Útblásturinn er þá alveg í andlitum barnanna sem ganga þar um, ég hef fulla trú á að við getum öll bætt úr þessu. (22. 11. 2012)
Stuðningur við leið okkar að grænfána Á dögunum fengum við glæsilega heimasaumaða poka að gjöf frá Kvenfélagi Þistilfjarðar. Pokarnir eru hugasaðir til að minnka notkun plastpoka. Börnin fá nú taupoka undir blaut föt sem foreldrar verða að skila aftur í leikskólann. Þökkum við þeim kærlega fyrir þessa fallegu gjöf og vonum að þetta eigi eftir að ganga vel. (20. 11. 2012)
Afmælisbarn dagsins Gunnþór Ingi varð 3ja ára í dag og bauð krökkunum uppá popp og farið var í skemmtilega afmælisleiki. Innilega til hamingju með afmælið Gunnþór:) (7. 11. 2012)
Bangsadagur Í dag héldum við upp á hinn alþjóðlega bangsadag sem er á morgun 27.október. Voru börnin með bangsa og sögðu okkur frá böngsunum. Síðan var mikið leikið. Finnst okkur bangsadagurinn alltaf skemmtilegur. (26. 10. 2012)
Starfsdagur Á mánudaginn 22.okóber er leikskólinn lokaður vegna starfsdags kennara. (19. 10. 2012)
Afmælisstúlka Hún Petra Dögg okkar á afmæli í dag og er hún þriggja ára. Við óskum henni innilega til hamingju með daginn:) Hún bauð upp á veitingar og svo var farið í íþróttahúsið þar sem allir hlupu um og höfðu gaman. (15. 10. 2012)
Afmælisbarn! Dögun er 2. ára í dag 12.október. Hún bauð börnunum upp á ávextir og kex. Innilega til hamingju með daginn Dögun:) (12. 10. 2012)
Syngjandi gaman Við fengum góðan gest í dag á Stekk. Hún Séra Hildur kom með gítarinn og lítinn fugl í farteskinu og það var mikið fjör. Séra Hildur leysir Brynhildi af sem er í sumarfríi. Kemur hún aðra hverja viku til okkar og hlökkum við mikið til að fá hana aftur. Sjá myndir í myndalbúmi. Ef þið veljið flipan deildir- stekkur -fréttir /auglýsingar þá getið þið horft á tvö stutt myndbönd frá heimsókninni. (2. 10. 2012)
Takk fyrir okkur! Samkaup Strax sendi okkur þessar glæsilegu ávaxta og grænmetiskörfur á dögunum. Við þökkum þeim kærlega fyrir þessa góðu gjöf. (27. 9. 2012)
Afmælisbarn í gær ! Sverrir Þór varð 2. ára í gær 16.september. Hann bauð börnunum í dag upp á popp og svo var farið að leika sér inni vegna veðurs. Innilega til hamingju með daginn Sverrir Þór :) (17. 9. 2012)
Kynning á vetrarstarfi Kynnigu á vetarstarfinu okkar verður frestað um eina viku. Og verður því mánudaginn 17.september klukkan 17:00. (10. 9. 2012)
Afmælisbarn dagsins Atli Berg er 4ra ára í dag. Hann bauð börnunum upp á popp og svo var farið út að leika. Innilega til hamingju með daginn Atli Berg:) (27. 8. 2012)
Afmælisstrákur Ari Snær varð 3ja ára 4.ágúst meðan við vorum í sumarfríi. Haldið var uppá afmælið hans í dag og bauð hann börnunum upp á popp. Innilega til hamingju með afmælið Ari Snær. (23. 8. 2012)
Takk fyrir frábæran vinnudag Nú erum við mætt aftur til starfa og börnin farin að leika sér á nýju lóðinni. Börnin og kennararnir eru alsæl með breytinguna og vil ég þakka ykkur foreldrar fyrir aðstoðina og alla vinnuna. Ég vil einnig þakka þeim fyrirtækjum sem hjálpuðu okkur s.s Ferðaþjónustunni á Ytra Lóni, BJ vinnuvélum og Barra á Egilstöðum. Ekki má gleyma að þakka fyrir rekaviðinn sem við fengum að taka í Heiði og þeir feðgar í Laxárdal sóttu fyrir okkur. Nú stefnum við á að bæta við rennibraut og klára framkvæmdir á ... (23. 8. 2012)
Opnum aftur eftir sumarfrí Nú er sumarfríið okkar að verða búið og komin tími á að fara aftur í rútínuna okkar :) Leikskólinn opnar aftur þriðjudaginn 21.ágúst. Aðlögun nýrra barna hefst miðvikudaginn 22.ágúst. Hlakka til að sjá ykkur öll brún og sælleg eftir dásamlegt sumar. (17. 8. 2012)
Sumarlokun Leikskólinn lokar frá og með mánudeginum 16.júlí í fimm vikur. Við þökkum þeim sem eru að hætta kærlega fyrir samveruma og vonum að allir hafi það gott í sumarfríinu. (13. 7. 2012)
Sumargleði í gær Í gær var sumarhátíð foreldrafélagsins í dásamlegu veðri. Boðið var upp á grillaðar pylsur, djús og kaffi. Hoppukastalinn vakti mikla lukku hjá börnunum sem hoppuðu og hoppuðu og hoppuðu:)Foreldrafélagið gaf leikskólanum einnig veglegar gjafir og færum við þeim okkar bestu þakkir fyrir það. Fleiri myndir frá hátíðinni eru á myndasíðunni. (11. 7. 2012)
Vettvangur í hestahverfinu :) Yngstu börnin á Seli fóru í vettvangsferð í dag að gefa hestunum brauð og á leiðinni vorum við að æfa okkur í að labba í röð, sem gekk bara mjög vel hjá okkur. Hestarnir tóku vel á móti brauðinu okkar og börnin skemmtu sér mjög vel. (9. 7. 2012)
Við erum Skóli á grænni grein Skólar á grænni grein – Grænfáninn Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og ... (3. 7. 2012)
Afmælisbarn Jón Bjarni átti afmæli 23.júní þar sem hann hefur verið í fríi hélt hann upp á afmælið í gær. Innilega til hamingju með 4.ára afmælið Jón Bjarni. (3. 7. 2012)
Til Hamingju Magda Magdalena okkar lauk á dögunum þriðja árinu í leikskólakennaranum frá Háskólanum á Akureyri. Innilega til hamingju með áfangann:) (3. 7. 2012)
Vantar starfsmann Nú er komið að því !Við auglýsum eftir stórsnjöllum og skemmtilegum starfsmanni á yngri deild sem hefur virkilegan áhuga á börnum. Um er að ræða 100% starf í eitt ár. Hægt er að sækja um hér á heimasíðu leikskólans undir flipanum „um leikskólann „ og svo starfsumsóknUmsókarfrestur er til 6.júlí Nánari upplýsingar gefur Halldóra leikskólastjóri í síma 468-1303 eða 862-4371 (27. 6. 2012)
Afmælisbarn Tómas Frank er 6 ára í dag, innilega til hamingju með afmælið. Hann bauð börnunum uppá snakk og svo var farið í leiki:) (27. 6. 2012)
Hjóladagur í dag. Í dag er hjóladagur í leikskólanum, það komu flestir með hjól og hjálma og eru duglegir að hjóla, fallegt og gott veður í dag hjá okkur. (22. 6. 2012)
Sigga við útskriftina Hún Sigga okkar var að útskrifast sem leikskólaliði frá framhaldsskólanum á Húsavík og óskum við henni innilega til hamingju! (21. 6. 2012)
Kveðjupartý Hafrúnar :) Dagurinn í dag var sá síðasti sem Hafrún Birna var hjá okkur í leikskólanum. Við þökkum henni kærlega fyrir skemmtilegar stundir í vetur. Takk fyrir samveru Hafrún Birna. (14. 6. 2012)
Afmælisbarn! Jóhannes Jakob Beck er 2 ára í dag og að því tilefni bauð hann okkur í snakk. Til hamingju með daginn Jóhannes Jakob. (31. 5. 2012)